Skilmálar og skilyrði

Upplýsingar um félagið:

Golfklúbbur Álftaness
kt. 470203-2260

Heimili  Þórukot
225 Garðabær
Sími 565 4747
email: golfalftanes@gmail.com

Staðfesting

Þegar þú hefur lokið við að bóka í bókunarkerfinu færðu tölvupóst með bókunarnúmeri og kvittun fyrir þjónustukaupunum. Kvittun jafngildir ekki afgreiðslu, við áskiljum okkur rétt til að bakfæra pöntun ef grunur um einhvers konar misferli vaknar.

 

Greiðslur og öryggi við pantanir – dulkóðun

Eftirfarandi kort er hægt að nota í bókunar- gjafabréfakerfi okkar:

Visa
Visa electron
Mastercard
Maestro
Greiðslan mun birtast á kortayfirliti þínu á sama hátt og almennar færslur í verslun.

Netverð (verð)

Uppgefið verð í bókunarkerfi okkar er í íslenskum krónum. Athugið að verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram. 

Þjónustan inniheldur virðisaukaskatt. Vinsamlegast athugaðu að verðið i bókunarkerfinu getur breyst án fyrirvara og að öll verð eru birt með fyrirvara um prentvillur.

Afbóknair

Við bjóðum upp á endurgreiðslu bókunarkerfinu ef afbókun berst innan 4 tíma áður en bókaður tími byrjar. Afbóka verður með því að smella á vefslóð (URL) sem fylgdi með í staðfestingapósti fyrir bókuninni.

Einnig er hægt að hringja í afgreiðslu okkar og afbóka innan 4 tíma áður en bókaður tími hefst. Síminn í afgreiðslunni er 565 4747

Öryggi vefsvæðis

Við setjum öryggi viðskiptavina okkar á oddinn. Við notum bestu tækni sem völ er á til að tryggja að allar greiðslur séu öruggar. Notast er við SSL kóðun til að tryggja dulkóðun kortanúmersins og annara persónugagna, en kóðunin uppfyllir ströngustu kröfur um gagnavernd á netinu.

Við vistum engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum.

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli.