Staðarreglur Golfklúbbs Álftaness
- Vallarmörk:
Vallarmörk eru vegir, göngustígar og hvítar stikur (regla 2-1).
Hvítar stikur meðfram 1, 2, 3, og 9 braut afmarka vallarmörk.
Hvítar stikur umhverfis 4. flöt gilda aðeins fyrir 8. braut
Við leik á holum 5,6 og 8 er vegur er liggur að Haukshúsum (gamli golfskálinn) vallarmörk. Liggi bolti á grasi í vegköntum sem eru vallarmörk telst boltinn í leik. Vegurinn að Haukshúsum gildir ekki sem vallarmörk fyrir 4. braut. Liggi bolti á vegi að Haukshúsum þegar 4. braut er leikin fæst vítislaus lausn af veginum, ekki nær holu (regla 16.1)
- Vítasvæði
Gular stikur afmarka vítasvæði (sefið) milli 7. og 8. braut. Jafnframt eru gular stikur meðfram göngu stíg við 7. braut og meðfram 7. Flöt. Lendi bolti leikmanns í vítasvæðinu er lausn samkvæmt reglu 17 þar sem hægt er að: 1) láta bolta falla á fallreit gegn einu vítishöggi 2) taka aftur-á-línu lausn gegn einu vítishöggi 3) leika honum þar sem hann liggur án vítis 4) endurtaka högg gegn einu vítishöggi. Órækt, ásamt trjágróðri á 6 braut eru skilgreind sem vatnstorfærur (merkt með rauðu) svo ekki þarf að finna boltann.
Gulir hælar eru umhverfis 7. flöt og 7. braut Ef leikmaður slær í það vítasvæði þá hefur hann 3 möguleika, leika boltanum þar sem hann liggur , endurtaka högg af sama stað gegn einu vítishöggi eða láta boltann falla á fallreit gegn einu vítis höggi.
- Færslur:
Færslur eru leyfðar um eina kylfulengd á öllum brautum, þó aldrei nær holu, að því tilskyldu að boltinn sé á snöggslegnu svæði þeirrar brautar sem spiluð er. Heimilt er að færa um pútters-haus á flötum, þó ekki nær holu. Aðrar færslur eru ekki leyfðar.
Nýtt torf á 7.braut er merkt með bláum hæl (grund í aðgerð) og er óheimilt að leika boltanum á torfinu. Láta skal boltann falla á braut vítislaust, stystu út úr blámerktu svæði þó ekki nær holu.
- Fallreitir:
Ef bolti lendir í gulmerktu vítasvæði við leik á 7. eða 8. braut má taka lausn samkvæmt reglu 17.1 eða láta boltann falla á merktum fallreitum gegn einu vítahöggi.
Sé vafi á hvort bolti er í eða týndur í vítasvæði við 7 eða 8 braut, má leikmaðurinn leika varabolta samkvæmt hvaða viðeigandi valkosti í reglu 17.1 sem er eða af fallreit. Finnist upphaflegi boltinn utan vatnstorfærunnar verður leikmaðurinn að halda áfram leik með honum. Finnist upphaflegi boltinn í vatnstorfærunni má leikmaðurinn annað hvort leika honum þar sem hann liggur, eða halda áfram leik með boltanum sem leikið var sem varabolta, samkvæmt reglu 17.1. Um varabolta gildir regla 18.3 að öðru leiti
- Óeðlilegar vallaraðstæður, óhreifanlegar hindranir og grund í aðgerð (Regla 16.1)
Óhreifanlegar hindraranir:
Fjarlægðarstikur, bekkir, brautarmerkingar, ruslafötur og hvítar stikur á 4. Braut
Lausn frá óhreyfanlegri hindrun er vítislaus; láta bolta falla innan 1 kylfulengdar ekki nær holu.
Öll mannvirki, önnur en þau sem hér hafa verið nefnd, eru hluti vallarins. Leika skal boltanum þar sem hann liggur eða taka lausn gegn víti.
- Grund í aðgerð
Bláar stikur eða bláar línur marka grund í aðgerð. Ekki er heimilt að leika í blámerktu svæði, láta skal bolta falla utan svæðisins, ekki nær holu, innan 1 kylfulengdar án vítis.
Nýtt torf á 7.braut er merkt með bláum hæl (grund í aðgerð) og er óheimilt að leika boltanum á torfinu. Láta skal boltann falla á braut vítislaust, stystu út úr blámerktu svæði þó ekki nær holu.
- Almennt:
Víti við broti á staðarreglum eru tvö högg í höggleik eða holutap í holukeppni. Að öðru leyti skal leika eftir reglum „Rules of golf as approved by R&A Rules Limited and The United states Golf Association”. Sérhver leikmaður skal laga öll kylfuför og öll boltaför jafnt á flötum, teigum sem brautum.
Staðarreglur þessar gilda frá 19.05.2025