LÖG GOLFKLÚBBS ÁLFTANESS
I. Heiti, heimili og hlutverk
1. grein

Félagið heitir Golfklúbbur Álftaness (GÁ). Heimili þess og varnarþing er á Álftanesi. GÁ er aðili að Golfsambandi
Íslands (GSÍ).

2. grein

Markmið GÁ á hverjum tíma er að efla áhuga manna á golfíþróttinni, vinna að framgangi hennar og hafa almennt
iðkun íþrótta á stefnuskrá sinni.
Félagið rekur golfvöll og skapar félögum aðstöðu til golfiðkunar. Stjórn skal halda félagsmönnum upplýstum um
málefni félagsins með heimasíðu og á öðrum miðlum félagsins.
II. Félagsmenn
3. grein

Félagar geta allir orðið sem hafa áhuga á að styðja tilgang félagsins og óska aðildar með umsókn. Inntaka nýrra
félaga er háð samþykki stjórnar og/eða rekstrar-/framkvæmdastjóra.
Stjórn skal ákveða hámarksfjölda félagsmanna hverju sinni miðað við þá aðstöðu til golfleiks og íþróttaiðkana sem
félagið getur boðið hverju sinni. Inngöngu í Golfklúbb Álftaness skal sækja um rafrænt.
Félagsaðild er ávalt öllum frjáls og ekki aðrar takmarkanir á þátttöku í félagsstarfi en þær sem ytri aðstæður, t.d.
þjálfunaraðstæður leyfa.
Æski fleiri félagsaðildar en unnt er að verða við skal setja umsækjendur á biðskrá.
Aukaaðild að klúbbnum geta fengið ungmenni 17 ára og yngri. Aukaaðild fylgir takmarkaður réttur til leiks á
golfvöllum félagsins samkvæmt reglum sem stjórnin setur. Stjórn skal ákveða hámarksfjölda aukafélaga miðað
við þá aðstöðu sem félagið getur boðið hverju sinni.

III. Árgjald
4. grein
Árgjöld og inntökugjöld skulu ákveðin á aðalfundi til eins árs í senn.
5. grein

Árgjald skal greitt eða frá greiðslu þess gengið fyrir 1. maí ár hvert. Hafi árgjald ekki verið greitt eða gengið frá
greiðslu fyrir 15. maí er stjórn heimilt að fella viðkomandi af félagaskrá og taka inn félaga af biðskrá í stað hans.
Eftir umsókn félagsmanns, og ef um er að ræða sérstakar aðstæður hans, er stjórninni heimilt að veita undanþágu
frá greiðslu gjalda.

6. grein

Samþykktur umsækjandi telst félagsmaður og fer á félagaskrá er hann hefur greitt ákvörðuð gjöld. Um félagsaðild
og þátttöku félagsmanna á golfmótum skal farið að lögum og reglum Golfsambands Íslands (GSÍ) og
Íþróttasambands Íslands (ÍSÍ).

IV. Golfleikur og reglur
7. grein

Við golfleik skal farið eftir St. Andrews golfreglum eins og þær eru á hverjum tíma og þeim reglum sem GSÍ setur.
Svo fremi sem þessar golfreglur banna ekki, getur stjórnin sett sérreglur (staðarreglur) um golfleikinn og um
umgengni og annað sem henni þykir þurfa hverju sinni.

8. grein

Félagsmenn og aðrir kylfingar eru skyldugir að fara eftir þeim golfreglum sem gilda á hverjum tíma enda sér
stjórnin um að þær séu nægilega kynntar og aðgengilegar félagsmönnum á heimasíðu og/eða öðrum miðlum
félagsins.

9.grein

Stjórnin skal setja reglur um skráningu rástíma, leikhraða, umgengni og framkomu á golfvöllunum og í
klúbbhúsum. Stjórnin getur bundið rétt til þess að leika aðalvelli félagsins við forgjafarlágmark. Brjóti félagsmaður
alvarlega eða ítrekað gegn reglum félagsins getur stjórnin beitt viðkomandi viðurlögum sem geta verið áminning,
tímabundinn missir réttinda til þess að mega ská rástíma, tímabundinn missir réttinda til þess að leika á golfvöllum
félagsins eða brottvísun úr félaginu. Stjórnin getur skipað aganefnd til þess að fara með agavald sitt. Brottvísun
úr félaginu skal þó ætíð háð samþykki stjórnarinnar.
V. Stjórn
10. grein
Kjörgengir til stjórnarstarfa eru lögráða félagsmenn.
11. grein

Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum sem kosnir eru á aðalfundi. Fjórir eru kosnir til tveggja ára i senn, tveir
í hvert sinn, en formann félagsins skal kjósa sérstaklega til eins árs í senn.
Formaður félagsins er aðalforsvarsmaður þess og kemur hann fram fyrir hönd félags og stjórnar þegar við á, auk
þess sem hann stýrir stjórnarfundum og sinnir öðrum þeim verkefnum sem stjórnin kann að fela honum og lög
heimila.

12. grein

Á aðalfundi skal jafnframt kjósa tvo varamenn í stjórn til eins árs í senn. Í forföllum aðalmanna skulu varamenn
kallaðir til í þeirri röð sem þeir voru tilnefndir við kjör eða kosnir. Varamenn mega sitja alla stjórnarfundi í félaginu
og hafa þar málfrelsi og tillögurétt en atkvæðisrétt hafa þeir aðeins í forföllum aðalmanns. Stjórnarmenn og
varamenn má endurkjósa.

13. grein

Á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund skiptir stjórnin með sér störfum þannig að einn skal vera varaformaður og
staðgengill formanns, einn ritari, einn gjaldkeri og einn meðstjórnandi. Þá skipar stjórnin í nefndir sem starfa á
vegum félagsins og tilnefnir fulltrúa félagsins í nefndir og ráð sem það á aðild að.
Að jafnaði skulu þessar nefndir starfa:
1. Vallarnefnd
2. Mótanefnd
3. Kvennanefnd
4. Aganefnd
Nefndir skulu skila yfirliti yfir störf liðins árs ekki síðar en 15. október ár hvert sem skal kynnt fyrir stjórn.

14. grein

Stjórnin getur ráðið félaginu rekstrar-/framkvæmdastjóra og ákveðið ráðningarkjör hans. Framkvæmdastjóri stýrir
daglegum rekstri félagsins í samræmi við stefnumörkun stjórnar.
Stjórninni er heimilt að greiða mönnum beinan kostnað sem leiðir af störfum þeirra fyrir félagið.

15. grein

Stjórnin kemur fram fyrir hönd félagsins og ræður málefnum þess með þeim takmörkunum sem lög þessi setja og
ber ábyrgð gerða sinna fyrir á aðalfundi. Stjórnin heldur fundi eins oft og þurfa þykir.

16. grein

Fyrir einstök og verðskulduð störf í þágu félagsins getur stjórnin gert að tillögu sinni að aðalfundur ákveði að
tiltekinn félagsmaður, einn eða fleiri, verði gerður að heiðursfélaga. Heiðursfélagar greiða ekki árgjald en njóta
allra félagsréttinda. Tilnefningunni skal fylgja sérstakt skjal til staðfestingar. Á sérstökum tímamótum getur

stjórnin veitt félagsmönnum og/eða velunnurum félagsins heiðursmerki og/eða afreksmerki félagsins i samræmi
við reglur sem um slíkt gilda.

17. grein

Stjórnin getur boðað til félagsfundar ef henni þykir henta. Stjórninni er skylt að halda félagsfund ef 1/10
félagsmanna óskar þess. Slíkan fund skal halda innan þriggja vikna frá því að skrifleg beðni og rökstuðningur
hefur borist stjórninni. Fundinn skal boða með sama hætti og reglulegan aðalfund.

VI. Aðalfundur
18. grein

Aðalfundur fer með æðsta vald félagsins. Aðalfund skal halda á Álftanesi eigi síðar en 1. febrúar ár hvert og skal
hann auglýsa með viku fyrirvara, á heimasíðu félagsins, með tölvubréfi og/eða á öðrum miðlum félagsins. Í
fundarboði skal tilgreina dagskrá.

19. grein

Aðalfundur er löglegur og ályktunarhæfur um öll málefni félagsins sé löglega til hans boðað. Afl atkvæða ræður
úrslitum mála á aðalfundi nema annað sé ákveðið í lögum þessum. Atkvæðisrétt hafa allir lögráða félagsmenn.
Á aðalfundi gerir formaður, eftir því sem unnt er, grein fyrir fyrirhugaðri starfsemi félagsins á væntanlegu starfsári.
Einnig skal kynna fjárhagsáætlun og fyrirhugaðar kostnaðarsamar nýframkvæmdir.
Tveimur vikum fyrir aðalfund skal stjórnin skipa þrjá félaga í uppstillinganefnd til þess að gera tillögu á aðalfundi
um kosningu stjórnar og varamanna í stjórn. A.m.k. einn þeirra skal hafa verið i stjórn eða varastjórn.

20. grein

Dagskrá aðalfundar skal vera:
1. Fundarstjóri og fundarritari kosnir.
2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
3. Ársreikningur lagður fram til samþykkis.
4. Lagabreytingar og aðrar tillögur skv. 21. gr. teknar til afgreiðslu.
5. Árgjald og önnur gjöld fyrir næsta starfsár.
6. Kosning formanns.
7. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn.
8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.
9. Önnur mál.
Fundarstjóra og fundarritara er skylt að ganga frá fundargerðum og skila til stjórnar tveimur vikum eftir aðalfund.

21. grein

Lögum félagsins verður aðeins breytt á aðalfundi þess og skal tillögum til lagabreytinga eða um breytingar á
starfstilhögun skilað til stjórnar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund. Nái tillaga til lagabreytingar samþykki
2/3 (tveggja þriðju hluta) greiddra atkvæða fær hún gildi.
22. grein
Reikningsár félagsins er frá 1. nóvember til 31. októberber ár hvert.
V. Ýmis ákvæði
23. grein

Komi fram tillaga um að félaginu skuli slitið skal hún tekin fyrir á sérstökum fundi sem stjórnin boðar til með
sama hætti og aðalfund. Slíkur fundur skal boðaður með viku fyrirvara á heimasíðu félagsins, tölvubréfi og/eða á
öðrum miðlum félagsins. Fundurinn er ályktunarhæfur ef minnst helmingur félagsmanna sækir fundinn og tillagan
fær gildi ef 2/3 fundarmanna samþykkja hana. Mæti ekki nægilega margir skal boða til fundar á ný og halda hann
innan þriggja vikna. Sá fundur er ályktunarhæfur án tillits til fundarsóknar og fær tillagan gildi ef 2/3 fundarmanna
samþykkja hana.

24. grein

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Þannig samþykkt á stofnfundi 14. maí 2002.
Lagfæringar hafa verið gerðar á lögum þessum á aðalfundum samkvæmt 21. grein
1. Þannig samþykktar lagfæringar að óskum laganefndar GSÍ á aðalfundi 28. febrúar 2006.
2. Þannig samþykktar lagfæringar á aðalfundi 22. febrúar 2017.
3. Þannig samþykktar lagfæringar á aðalfundi 21. febrúar 2018.
4. Þannig samþykktar lagfæringar á aðalfundi 28. janúar 2025